Að fjarlægja Tor-vafrann úr tölvunni þinni er einfalt:

Á Windows:

  • Finndu möppuna með Tor-vafranum eða forritinu. Sjálfgefin staðsetning er Skjáborð/Desktop.
  • Eyddu möppunni með Tor-vafranum eða forritinu.
  • Tæmdu ruslið

Á macOS:

  • Finndu möppuna með Tor-forritinu. Sjálfgefin staðsetning er Applications-mappan.
  • Færðu forritið Tor-vafrann í ruslið.
  • Farðu í möppuna ~/Library/Application Support/.
  • Athugaðu að Library-mappan er falin í nýrri útgáfum macOS. Til að komast í þessa möppu í Finder, skaltu velja "Go to Folder..." í "Go" valmyndinni.

Farðu í færslu möppuvalmyndar.

  • Then type ~/Library/Application Support/ in the window and click Go.

Farðu í möppugluggann.

  • Finndu möppuna með Tor-vafranum og færðu hana í ruslið.
  • Tæmdu ruslið

Athugaðu að ef þú settir Tor-vafrann ekki upp á sjálfgefinni staðsetningu (Applications-möppunni), þá er gagnamappan TorBrowser-Data ekki staðsett í ~/Library/Application Support/ möppunni, heldur í sömu möppu og þú settir Tor-vafrann upp í.

Á Linux:

  1. Finndu möppu Tor-vafrans. Á Linux er engin sjálfgefin staðsetning, hinsvegar mun mappan heita "tor-browser_en-US" ef þú ert að keyra ensku útgáfuna af Tor-vafranum.
  • Eyddu möppunni með Tor-vafranum.
  • Tæmdu ruslið

Athugaðu að venjulega "Taka út forrit" eining stýrikerfisins þíns er ekki notuð.