Ef slíks er óskað, má gera Tor-vafrann færanlegan (portable) með því að yfirfæra hann úr uppsetningamöppunni beint yfir á útskiptanlega gagnamiðla á borð við USB-minnislykla eða SD-minniskort.
Það er ráðlagt að nota skrifanlega gagnamiðla, svo hægt sé að uppfæra Tor-vafrann eftir þörfum.
Fyrir Windows:
Tengdu inn útskiptanlega gagnamiðilinn og forsníddu hann. Hvaða skráakerfi sem er mun virka.
Farðu á niðurhalssíðu Tor-vafrans.
Sæktu Windows .exe
skrána og vistaðu hana beint á gagnamiðilinn.
(Ráðlagt) Sannreyndu undirritun skránna.
Þegar búið er að sækja skrána, skaltu smella á .exe
skrána og hefja uppsetningarferlið.
Þegar uppsetningarforritið spyr hvar eigi að setja Tor-vafrann upp, skaltu velja útskiptanlega gagnamiðilinn þinn.
Fyrir macOS:
Tengdu inn útskiptanlega gagnamiðilinn og forsníddu hann. Þú verður að nota macOS Extended (Journaled) skráakerfi.
Farðu á niðurhalssíðu Tor-vafrans.
Sæktu macOS .dmg
skrána og vistaðu hana beint á gagnamiðilinn.
(Ráðlagt) Sannreyndu undirritun skránna.
Þegar búið er að sækja skrána, skaltu smella á .dmg
skrána og hefja uppsetningarferlið.
Þegar uppsetningarforritið spyr hvar eigi að setja Tor-vafrann upp, skaltu velja útskiptanlega gagnamiðilinn þinn.
Fyrir GNU/Linux:
Tengdu inn útskiptanlega gagnamiðilinn og forsníddu hann. Hvaða skráakerfi sem er mun virka.
Farðu á niðurhalssíðu Tor-vafrans.
Sæktu Linux .tar.xz
skrána og vistaðu hana beint á gagnamiðilinn.
(Ráðlagt) Sannreyndu undirritun skránna.
Þegar búið er að sækja skrána, skaltu einnig afþjappa safnskrána á gagnamiðilinn.